The spheroidal gaseous envelope surrounding a heavenly body

Sigúrd...

30.11.2007 21:26:07 / siggist

Video killed the radio star...

Ég er orðinn útvarpsfíkill!! 8| Eða svo gott sem...

Þannig er nefnilega mál með vexti aaaaaað...ég gleymdi iPodinum mínum um daginn í flugvélinni þegar við Alma komum út. Ég fæ hann semsagt sennilega aldrei aftur og þarf því að fara að vinna í því að fá nýjan iPod classic svartan 80GB ;) hehe...

Í mótmælaskyni ákvað ég að fá ekki iPodinn hennar Ölmu lánaðan og hlustaði því bara á útvarpið á leiðinni í skólann á morgnana, klukkutíma og korter...og svo á leiðinni heim úr skólanum, klukkutíma og korter.

Ég fann þá útvarpsstöðina "Radio 1". Á morgnana hlusta ég alltaf á "The Chris Moyls Show" og svo á leiðinni heim er það hann Scott Mills sem sér um fjörið.

Ég varð svo hálf fúll á mánudaginn þegar ég kveikti á útvarpinu og lagði af stað heim...ENGINN SCOTT MILLS!! Var bara komin einhver kelling sem var að leysa hann af... Ég var alls ekki ánægður með það og hafði það allmikil og slæm áhrif á vikuna mína. Ég reyndi svo aðeins að sætta mig við þetta og er oðrinn aðeins sáttari við hana núna...hún er ekki svo slæm...en hlakka samt til að heyra í Scott aftur...hehehe

Ótrúlegt...

Til að gefa ykkur smá hugmynd um hvað ég er að tala um þá er Súper á FM957 alveg greinilega byggður upp á þessum morgunþætti. Chris Moyls Show er víst með um 8 milljón hlustendur á hverjum morgni... Það sem er skemmtilegt við þetta er samt að þeir geta verið skemmtilegir og EKKI verið að tala um samkyni kynjanna ALLA DAGA!! Reyndar er kynlíf greinilega eitthvað bannorð hérna því að aldrei er talað um það. Bara svona venjulegur vitleysis háttur og t.d. mörg mjög fræðileg og skemmtileg stef...híhí

Jæja...fróðleg bloggfærsla...NOOOOOOT!!!!

En maður heyrir nú nokkur skemmtileg lög svona af og til...

Foo Fighters - Long Road to Ruin

Foo Fighters - The Pretender

The Hoosiers - Goodbey Mister A

The Hoosiers - Worried About Ray

Reverend & The Makers - Open Your Window

Scouting for Girls - Elvis Ain't Dead

Scouting for Girls - She's So Lovely

Sigúrd...


Rosalega hlakka ég til að fara að spila aftur! :)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 13:16:04 / siggist

Englandið...

Já fínt, já sæll, maður hefur bara engan tíma til að vera að blogga. Slatti nóg að gera hjá manni síðan að maður kom út.

Ég vakna á hverjum einasta morgni um 7 leytið og legg í langa ökutúrinn í skólann minn. Tekur það alveg frá klukkustund og korter upp í eina og hálfa klukkustund. Ég krúsa bara á hraðbrautinni og hlusta á Chris Moyles show...hehe. Ég er svo í skólanum allan daginn og er yfirleitt kominn heim um 6 leytið. Þá er það bara að leyra fyrir VMA fjarnámið, teikna aðeins í grunnteikningunni og gera verkefni í hinu...og svo náttla líka að læra heima fyrir kennararéttindin.

Flugkennaranámið gengur alveg ágætlega þakka þér. Ég verð nú eiginlega að viðurkenna það að ég mér finnst þetta nú vera erfiðasti hlutinn í verklega flugnáminu. Búið að henda verklega og bóklega partinum saman í eina súpu. Ótrúlega erfitt líka oft að koma orðunum frá sér og maður þarf að vera sérlega nákvæmur í orðavali þegar maður er að reyna að kenna eitthvað. Kennarinn er líka ansi góður í að gera mistök greyið og þarf maður þá að taka eftir því og hjálpa greyinu...hehe...ansi skrautlegt oft.
Til að fólk skilji hvað ég á við þá fer kennarinn semsagt yfir eina kennslustund með okkur á töflunni sem að við þurfum svo að kenna honum í loftinu...og hann leiur nemandann.

Þó að hann sé ótrúlega góður í að leika sig lélegan er þetta ótrúlega hæfur gaur. Veit endalaust mikið og er ótrúlega nákvæmur og góður að fljúga rellunni...er líka með margra ára reynslu.

Annars er lífið ansi lítið áhugavert þessa dagana. Við Alma skruppum reyndar til Gloucester um síðustu helgi og fórum í smá verslunarferð. Byrjuðum á Matalan og Alma fékk kápunni sinni skipt í rétta stærð. Ég var ansi ánægður með það þar sem að ég gaf henni hana í afmælisgjöf...og Alma er víst líka rosa ánægð með hana. Um kvöldið fórum við svo bara út að borða á Bella Italia og höfðum það gott.


Alma fyrirsæta á Bella Italia...

Svo reyndar er ég búinn að sjá ansi sniðugan breskan sjónvarpsþátt. Ótrúlegt að sjá muninn á breskum þáttum og amerískum þáttum...en nafnið á þessum þætti gefur til kynna að ef að hann væri amerískum væri þetta klisja dauðans.
Þessi þáttur heitir semsagt "The Secret Millionaire" Í hverjum þætti er fenginn einhver breskur milljónamæringur og er hann sendur í 10 daga svona "under-cover" og þykist vera ósköp venjulegur maður. Í síðasta þætti var milljónamæringurinn 26 ára breskur drengur bókstaflega sem fór og var að vinna í svona félagsmiðstöð í einu versta hverfi London. Fólkinu var sagt að hann væri að gera heimildarmynd og lífið í þessu hverfi. Hann hafði þá 10 daga til að finna fólk sem að hann vildi gefa sína peninga og hjálpa því.
Finnst þetta bara ansi sniðugir þættir og gaman að sjá að það eru ekki allir milljónamæringar sem hugsa um eigið rassgat.

Þessi strákur var líka hálf ótrúlegur. Þegar hann var 6 ára var hann greindur með lesblindu á alvarlegu stigi og sagði kennarinn hans honum að hann yrði aldrei neitt í lífinu. Upp frá því ákvað hann að gera eitthvað við líf sitt og stóð svo sannarlega við það. Var kominn í atvinnurekstur þegar hann var 15 ára gamall og á sínum fyrsta viðskiptafundi sló hann sannarlega í gegn og gerði samning upp á 25 milljónir punda...sem er slatti mikið af peningum...ekki slæmt að eiga eina þannig summu.

En allavega...jább...veit ekki alveg hvað ég var að reyna að segja. Allavega "góðhjartaðir" þættir...hehe ;)

Sigúrd...


Hörgárdalurinn...


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 21:04:15 / siggist

GL52 2AA

Þá erum við Alma aftur mætt í fínu íbúðina okkar hérna í Cheltenham. :) Það er nú ögn þægilegt og gott bara að vera komin "heim" aftur...því að við köllum þetta nú heimilið okkar ;) soltið skrítið...en samt satt...

Við skelltum okkur með flugi í borgina á fimmtudagskvöldið og Alma fór að hitta systur sína og hjálpa henni aðein við flutningana hennar. Ég fór á meðan og hitti hann Stefán og Einar aðeins...smá Douglas Wilson fundur... :)

Við gistum hjá henni Rósu systir minni og borðuðum svo morgunmat með henni á föstudaginn. Við fengum líka bílinn hennar lánaðan á föstudaginn...takk :* Ég og Alma fórum svo að hjálpa Björk systur hennar að flytja og bárum við mikið dót...uss uss

Við vöknuðum svo klukkan 6 í morgun til að mæta í flugið okkar. Dagurinn byrjaði ekki vel og komst Alma að því að hún átti ekki sæti pantað í þetta flug vegna misskilnings...Alma segir örugglega betur frá því á blogginu sínu. Endaði það með því að Alma fékk sæti í Saga Class og fengum við því ekki sæti saman. Ég var nú ansi fúll yfir þessum lélegu mistökum hjá IceAir þar sem ég hafði keypt dýrara far til að geta farið með henni Ölmu minni og svo voru meira en 20 raðir á milli okkar. Það reddaðist sem betur fer í vélinni og fékk ég líka að fara í Saga Class...en það endaði hinsvegar með því að ég gleymdi iPodinum mínum í gamla sætinu mínu. :( Ekki alveg nógu gott...

Svo biðum við á Heathrow í smá tíma eftir rútunni okkar og spiluðum aðeins. Lítið að segja um það annað en að ég vann Ölmu í allavega 7 Olsen-Olsen spilum í röð!!!!!!! Ótrúlegt! Hvar er Guinness þegar maður þarf á þeim að halda... :D

En já...svo "bilaði" bílinn líka áðan :( Þetta er alls ekki okkar dagur... Hann varð nefnilega bremsulaus í smá tíma. Við vorum semsagt á leið í Sainsbury's þegar ég ákvað að prófa aðeins bremsurnar...sjá hvernig þær virkuðu og svona og stíga í botn. Allt í einu fór ég bókstaflega í botna þar sem að ég steig bremsupedalinn í gólf!! hehe...það var frekar freaky...hef aldrei keyrt bremsulausan bíl áður.
Hann var samt ekki alveg bremsulaus...en þeir virkuðu frekar lítið, svo var náttla handbremsan í lagi. Ég keyrði aðeins um og leitaði að verkstæðum en allt lokað...þá skelltum við okkur í Tesco og þegar við lögðum aftur af stað þá var bara í lagi með bremsurnar!! hehe...frekar skrítið. En ætli maður skelli sér ekki með bílinn á morgun og láti kíkja á hann aðeins.

En jæja...CSI að byrja...later

Sigúrd...


Seinna Akureyri...later :(


» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 49505
Könnun
Á ég að blogga af og til eður ei?!
Of course my horse...
19 atkvæði

Nibb...oj bara
0 atkvæði

Já...everyday!
0 atkvæði

Loka þessu síðubjeði...
44 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 63